Fyrirsögn: Sem betur fer.
eigum við háskólamenntað fólk sem stuðlar að velferð, heilbrigði og öryggi okkar allra.
Menntun og þekking eru lykillinn að þeim góðu lífskjörum sem almenningur á Íslandi býr við. Háskólamenntað fólk vinnur fjölbreytt störf, bæði á opinberum og almennum vinnumarkaði, sem skapa verðmæti og stuðla að velferð, heilbrigði og öryggi þjóðarinnar. Þetta hefur meðal annars komið skýrt fram í kórónuveirufaraldrinum. Mikilvægt er að menntun og framlag þessa hóps verði metin til launa.

Bandalag háskólamanna, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Læknafélag Íslands vekja athygli á mikilvægi háskólamenntaðs fólks fyrir verðmætasköpun í samfélaginu, samkeppnisstöðu á alþjóðavettvangi og sjálfbærni landsins til framtíðar.

Við stöndum öll í þakkarskuld við þetta fólk.
Mynd af 2 læknum, 2 hjúkrunarfræðingum og 2 háskólafólki.